Húsasmiðjan leitar að metnaðarfullum leiðtoga til að reka verslun okkar á Ísafirði. Við leitum að einstaklingi sem brennur fyrir þjónustu og fólki, er söludrifinn og hefur jákvætt hugarfar. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir réttan aðila til að vera þátttakandi í frekari uppbyggingu á örum og spennandi markaði.
Húsasmiðjan er leiðandi á byggingavörumarkaði, með sterk og vönduð vörumerki. Blómaval þjónustar blóma- og garðáhugafólki allt árið um kring.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning og ábyrgð á daglegri starfsemi, rekstri og afkomu
- Sköpun og eftirfylgni viðskiptasambanda
- Umsjón með innkaupum og birgðahaldi
- Umsjón með starfsmannamálum
- Stuðla að jákvæðum starfsanda og starfsumhverfi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stjórnunarreynsla og hæfni til að leiða fólk til árangurs
- Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund
- Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni
- Góð þekking á verslunarrekstri og/eða á byggingavörumarkaði
- Reynsla af sölustörfum, sölustjórnun og viðskiptatengslum er kostur
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Hvetjum öll áhugasöm til að sækja um óháð kyni.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Guðrún Tinna framkvæmdastjóri verslanasviðs á tinna@husa.is
Nánar um vinnustaðinn hér: https://www.husa.is/upplysingar/vinnustadurinn/